Hola!
Dvöl mín hér í Ecuador er komin á það stig að ég er hætt að telja dagana sem ég hef verið hérna, en ég veit þó að þetta er vika þrjú. Þessar þrjár vikur hafa verið mjög ólíkar:
Vika 1: Ég að vorkenna sjáfri mér fyrir að þurfa að vera hérna í eitt ár. Heimþráin var mikil, næstum yfirgnæfandi.
Vika 2: Ég búin að sætta mig við að lífið mitt er HÉR næsta árið.
Vika 3: Ég loksins byrjuð að njóta lífsins hérna og er virkilega sátt!
Seinasta blogg sem ég skrifaði var á fimmtudegi minnir mig og síðan þá hafa dagarnir verið skemmtilegri.
Á föstudeginum fór ég með Sofie, stelpu frá Belgíu sem býr frekar nálægt mér, Mathilde frá Frakklandi og Emmu, líka frá Belgíu í Mall del sol, að kíkja í búðir og versla. Sofie kom til mín um morguninn og við fengum okkur morgunmat saman og tókum svo leigubíl í mollið. Það tekur svona 20 mínútur að keyra heiman frá mér og niðrí bæ, sem sagt downtown Guayaquil og við borguðum 7$ dollara! Og þar sem við vorum tvær var þetta nú ekki mikill peningur á mann. Okkur til mikillar gleði - það er víst líka dýrt að taka taxa í Belgíu, eins og á Íslandi (samt pottþétt ekki jafn dýrt). Markmið mitt í þessari verslunarferð var að kaupa mér sæt sumarföt, þar sem það er fáránlega heitt hérna og ég tók alls ekki það mikið af fötum með mér. En okkur fannst fötin svo dýr og komumst að þeirri niðurstöðu að við værum bara í alltof dýru molli...eftir frekari rannsóknir erum við búnar að komast að því að ÖLL FÖT ERU DÝR Í ECUADOR! ... eða svona miðað við það sem hefði haldið, þetta er þó sem betur fer alltaf ódýrara en Ísland svo þetta sleppur! Það sem er samt virkilega ódýrt hérna er maturinn þannig við skelltum okkur allar á Pizza Hut og McFlurry í eftirrétt og ég veit ekki hvað og hvað!
Daginn eftir, laugardaginn fór ég með Ramiro, host pabba mínum að skoða borgina, Guayaquil. Við komum við á pósthúsinu, þar sem ég sendi nokkur afmæliskort til Íslands (úú spennó) en svo skoðuðum við dómkirkjuna, einhvern eðlugarð (what?) og merkilega staði í borginni. Það var brjálæðslega heitt úti og við ákváðum að skoða fyrsta hverfið í borginni sem sagt gamla hlutann og váááááá við þurftum að labba upp 444 tröppur. Það hljómar kannski ekkert svo hræðlegt en trúðu mér það var erfitt í þessum hita. En þegar við vorum komin upp sáum við borgina frá virkilega fallegu sjónarhorni, þannig þetta var alveg þess virði. Um kvöldið fór ég í leikhús með þeim, mjög lítið og krúttlegt leikhús með svona 30-40 áhorfendum. Aðalleikarinn er vinur þeirra hjóna og einnig voru margir vinir þeirra á sýningunni. Þar kynntist ég nokkrum virkilega fínum ekvadorískum krökkum og eftir sýninguna fórum við nokkur saman út að borða kl. hálf 1! Mér fannst það nú frekar seint, en margir veitingastaðir voru opnir þá. Við fengum okkur Shawarma sem er eitthvað arabískt, mjög gott! Um nóttina var ég andvaka í 5 klukkutíma útaf þessum helvvv moskítóbitum og endaði á því að setja naglalakk á bitin (veit ekkert hvort það var góð hugmynd), svo setti ég aloe vera á þau, tók verkjatöflur, fór í sokka og sofnaði á endanum.
Sunnudagurinn var mjög rólegur og ég eyddi deginum við sundlaugina nema núna var hún full af krökkum, annað en á virkum dögum þegar ég er ein heima í hverfinu. Seinni partinn fór ég með foreldrum mínum í bíó á Rise of the planet of the Apes ... ég sá hana reyndar á Íslandi en þetta var eina myndin með ensku tali og spænskum texta. Á meðan við biðum eftir að myndin byrjaði fórum við inní einhverja tónlistarbúð þar sem við skoðuðum tónlist og kvikmyndir. Þarna voru mjög flottir bolir, svona hljómsveita stuttermabolir. Ég sá einn sem mér fannst flottur og benti á hann en hélt svo áfram að skoða. Þegar við löbbuðum út úr búðinni réttu þau mér pakka og í honum var bolurinn sem mig langaði í! Þau sögðu að þetta væri ein afmælisgjöf til mín af mörgum. Haha þau eru æðisleg!
Ég átti að byrja í skólanum á mánudaginn 5. sept en svo kom það í ljós að ég er bara ekki komin með neinn skóla þannig ég hafði aðra viku í frí þannig ég og Sofie ákváðum að nota þessa viku í eitthvað skemmtilegt:
Á mánudaginn ákváðum ég og Sofie að gera tilraun tvö til þess að versla, ég fór til hennar og svo héldum við downtown. Við fórum í Malecon mall sem er við ánna, Rio Guayas nema mollið er eiginlega neðanjarðar og þar átti víst að vera svakalega ódýrt. Það var samt enginn svakalegur munur á verðunum í fína mollinu og þessu. Kannski var það vegna þess að fólkið þar tvöfaldar verðið ef viðskiptavinurinn er hvítur. Lovely ....
Á þriðjudaginn fór ég heim til Sofie og við vorum hjá henni allan daginn, slöppuðum af við sundlaugarbakkann og bara kósý, hún gisti hjá mér um nóttina -mjög girly sleepover haha. Við vöknuðum um hádegi daginn eftir og eyddum deginum í sundlauginni. Þann dag var 42°C hiti! Ég hélt að ég myndi gufa upp. Við skárum niður ananas og jarðaber og borðuðum með nutella súkkulaði -ekki slæmt. Seinni partinn þegar laugin var orðin full af litlum krökkum ákváðum við að fara inn í hús og þegar ég labbaði frá sundlauginni kölluðu allir litlu krakkarnir á eftir mér "BYEEE stefania"haha svo krúttlegt.
Í dag, fimmtudag fórum við, ég og Sofie aftur í moll rétt hjá okkur. Ég fann búð sem ég er búin að ákveða að er uppáhaldsbúðin mín, ég mátaði rosalega sætan kjól í tveim litum og gat ekki ákveðið hvorn litinn ég ætti að taka þannig ég tók svona "Hvað myndi mamma mín gera?" ...þannig ég keypti báða litina. Við keyptum inneign á símana okkar og fórum ALVEG SJÁLFAR og tókum út úr hraðbanka! Vá hvað ég var stolt af mér. Við hittum ekvadoríska stelpu í mollinu sem hafði farið sem skiptinemi til Ítalíu í fyrra og langaði að kynnast skiptinemunum hér, og þar sem við erum ekki í skóla ákváðum við bara að slá til og hitta hana. Hún var alveg mjög fín en mjög Suður Amerísk. Hún bauð mér og Sofie út að borða -okkur til mikillar undrunar en hún bara "ekkert mál, ég er með kredit kortið frá pabba mínum" Við bara "okei ....." En hún var mjög fín og gaf okkur mörg góð ráð um Ecuador og hvar væri ódýrt og hvar ekki og svona. Einnig talar hún spænsku og vill hjálpa okkur að læra ... ég er samt ennþá að ákveða það hvort mér líki við hana útaf því þegar ég talaði spænsku fór hún að hlægja ... hún fór eiginlega bara í hláturskast. Mér og Sofie til mikillar furðu.
ÚÚÚÚÚFFF á morgun er föstudagur ... eða það er komin föstudagur á Íslandi. Og ég ætla líklegast bara að slappa af um daginn en kannski ætlum við skiptinemarnir í Guayaquil að gera eitthvað saman um kvöldið eða um helgina. Ég á að öllum líkindum að byrja í skólanum á mánudaginn en við sjáum til. Hérna gengur allt svo hægt fyrir sig.
Froska update: Froskahljóðið kemur frá FUGLI!! Guð hvað ég er fegin, samt sem áður eru fáránlega margir froskar útum allt hérna og þegar ég fer út á kvöldin sé ég þá allstaðar!! Froskarnir eru samt ekkert pirrandi miðað við moskítóflugurnar, ég er farin að halda að þær ætli að éta mig til agna ... ég kem örugglega ekki heil heim!
Random:
- Ég reyni að segja fólki að ég sé frá Íslandi, Iceland, Islandia en það heyrir bara Ireland.
- Fólk heldur að enska sé fyrsta tungumálið mitt, ég legg ekki einu sinni í það að reyna að útskýra fyrir þeim að á Íslandi tölum við íslensku ... ég nenni ekki að flækja hlutina.
- Umferðin hérna er CRAZY ég ætla að quote-a í Sigrúnu Gyðu (skiptinema í Quito, Margrét í Esmeraldas quotaði líka í hana) "Það notar engin bílbelti, flestir snúa ekki rétt eða hanga út úr bílunum. Strætókerfið hér er fucked, fólk hangandi út, það kostar 20 krónur á veturnar og þeir koma ekki á ákveðnum tímum". Fólkið hérna bípar svo mikið og þar á meðal host mamma mín. Ég hef talið upp í 26 bíp í einni stuttri bílferð og stundum sé ég enga ástæðu fyrir að ýta á flautuna. Það eru engin takmörk á því hversu margir mega fara í einn bíl, öllum hópnum er bara troðið aftur í, litlu börnin sitja fram í hjá foreldrunum og ef bílinn er með pall fer restin þangað. Svakalegt!
- Ég hitti stelpu um daginn sem hatar banana!! Og hún er frá Ecuador. Ég hélt að svoleiðs manneskja væri ekki til! ... ég er ekki ennþá byrjuð að borða banana. Hehehe
- Það tala allir svo hratt hérna :( Ég er að reyna að heyra orðin sem þau segja en allt í einu er manneskjan búin að segja 30 orð í viðbót og ég missti af þeim öllum og ég reyni að biðja þau um að endurtaka sig og þá segja þau bara eitthvað annað, lengra og hraðara! Svakalegt. Ef einhver kemur til Íslands og er að reyna að læra tungumálið ætla ég að stafa orðin ofan í hann.
- Í dag bauð sextugur kall mér og Sofie að heimsækja sig í húsinu hans á ströndinni núna um helgina. Við afþökkuðum pent.
- Fólk kommentar frekar mikið á freknurnar á mér ... enda er þeim að fjölga.
- Á mánudögum og fimmtudögum þarf ég ekki að búa um rúmið mitt! YAY .. þá kemur Marie hreingerninar-konan. Ég get eiginlega ekki verið heima þegar hún er að þrífa því sama hvar ég er þá er ég fyrir henni. Hún eldar líka alltaf hádegismat en þá borða ég matinn í fínu stofunni en hún borðar inní eldhúsinu ... mjög skrítið.
Jæja ég held að þetta sé komið nóg í bili, nú er helgi framundan sem ég vona að verði ánægjuleg bæði fyrir ykkur og mig. :D Sorry hvað þetta blogg var langt!
P.S. Ég var ávörpuð señora hérna um daginn, ég hef aldrei verið jafn móðguð!!
P.S.S Hversu mörg hræðilega vandræðaleg samtöl þarf ég að eiga á spænsku til að eiga eitt gott?
P.S.S ÉG ER KOMIN MEÐ FAR!
Adios, hasta pronto
-Estefania
vá hvað ég öfunda þig að vera í hitanum að chilla í sundlauginni, það vasssvo mikið rok í gær og hinn og það var kominn svona vetrarkuldi í loftið ! alveg skelfilegt
ReplyDelete"þannig ég tók svona "Hvað myndi mamma mín gera?" ...þannig ég keypti báða litina." hahaha LOL
"Í dag bauð sextugur kall mér og Sofie að heimsækja sig í húsinu hans á ströndinni núna um helgina. Við afþökkuðum pent. " haha I wonder why ...
en hvernig hljómsveitabol fékstu? :D
btw awesome blogg það er svo gaman að lesa þetta :D svo fer ég bráðum að fá mér skype...þegar ég nenni að láta katrínu hjálpa mér haha
love youuuuu
ReplyDeleteÞú ert náttúrulega ekki þessi snertiglaða manneskja svo ég efast um að kossaflensinn sé unaður fyrir þig og ok lol á naglalakk á bitin
HAHA á þennan sextuga, "afinn var þá ekki pervert...jæja" kv Dóra mamma
Mjög skemmtilegt blogg og ég hlakka til að heyra meira** gott þú sért að NJÓTA!!
xx